YOUTUBE SHORTS
YouTube Shorts fyrir fyrirtæki
Myndbönd sem stöðva skrollið
Hvað við gerum
YouTube Shorts ná til áhorfenda sem fylgja þér ekki endilega nú þegar. Stutt, lóðrétt myndbönd á YouTube geta kynnt fyrirtækið fyrir nýjum hópi fólks og vísað áhorfendum áfram á rásina þína.
Við sjáum um strategíu, hugmyndir, handrit, tökur og klippingu á einum stað. Myndböndin eru klippt fyrir snjallsíma og sniðin að YouTube Shorts, og sama efni má aðlaga fyrir TikTok og Instagram Reels. Flestir viðskiptavinir okkar fá 1–3 myndbönd á mánuði.
Við sérhæfum okkur í myndbandsgerð fyrir samfélagsmiðla. Hugmyndavinna, handrit, tökur, klipping og birting, allt á einum stað.
Afhent myndbönd
Ánægðir viðskiptavinir
Valin verk
Við höfum unnið með
Ferlið okkar
Svona vinnum við YouTube Shorts, frá strategíu að birtingu.
01
Strategía og hugmyndir
Við skoðum hvaða áhorfendum þú vilt ná og hvaða efni hentar YouTube. Svo komum við með hugmyndir sem henta forminu.
02
Handrit
Hvert myndband fær hnitmiðað handrit með skýrum krók í byrjun. Þú færð það til yfirlestrar áður en nokkuð er tekið upp.
03
Tökur með leikurum
Við sjáum um tökurnar með allan búnað. Þitt fólk getur verið í mynd, eða við fáum leikara inn.
04
Klipping og birting
Við klippum, litvinnum og textum myndböndin fyrir Shorts. Eftir samþykki birtum við þau.
Fyrir hverja?
Fyrir fyrirtæki sem vilja nýta YouTube betur, hvort sem þau eru þegar með rás eða eru að byrja. Shorts henta vel fyrir fræðandi efni, stuttar vörukynningar og svör við algengum spurningum viðskiptavina.
Algengar spurningar
Getum við notað sömu myndbönd á TikTok og Reels?
Já. Við aðsníðum myndböndin að hverjum miðli, hvort sem það er TikTok, Instagram, Facebook Reels eða YouTube Shorts.
Hver kemur með hugmyndirnar?
Við. Þú færð hugmyndir og handrit til yfirlestrar áður en nokkuð er tekið upp. Ef þið eigið hugmyndir sjálf tökum við þær inn með glöðu geði.
Hversu mörg myndbönd fáum við?
Það fer eftir þörfum hvers og eins, en flestir viðskiptavinir okkar fá 1–3 myndbönd á mánuði.
Hvað kostar þjónustan?
Bókaðu fund og við smíðum pakka út frá þínum þörfum.
Viltu ná til nýrra áhorfenda?
Bókaðu kynningarfund og við förum yfir hvernig YouTube Shorts geta nýst fyrirtækinu þínu.
Sími
Netfang
Við framleiðum stuttmyndbönd fyrir samfélagsmiðla sem auka sýnileika og skila raunverulegum árangri.
Hafa samband
© 2026 Víbrur ehf.
Myndbönd sem stöðva skrollið












