TIKTOK · STUTTMYNDBÖND

TikTok myndbönd fyrir fyrirtæki

Hvað við gerum

Við framleiðum TikTok myndbönd fyrir fyrirtæki sem vilja ná athygli. Hvert myndband er hannað frá fyrsta ramma: krókur sem stöðvar skrollið, skýr skilaboð og endir sem fær fólk til að bregðast við. Við sjáum um allt ferlið, frá strategíu og hugmyndum til handrits, upptöku, eftirvinnslu og birtingar.

Við sérhæfum okkur í myndbandsgerð fyrir samfélagsmiðla. Hugmyndavinna, handrit, tökur, klipping og birting, allt á einum stað.

áhorf á myndböndin okkar
áhorf á myndböndin okkar
áhorf á myndböndin okkar

Afhent myndbönd

Ánægðir viðskiptavinir

Valin verk

Hafþór Júlíus

Áhrifavaldur

1M like

ZO-ON

Útivistarfatnaður

1.595 like

Halla Tómasdóttir

Forsetaframboð 2024

6.276 like

HS Veitur

Veitur og innviðir

1.897 like

Lyfja

Verslun og heilsa

1.329 like

Eyþór Wöhler

Persónulegt vörumerki

1.308 like

Við höfum unnið með

  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan
  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan
  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan

Ferlið okkar

Svona verður TikTok myndband til hjá okkur, skref fyrir skref.

01

Strategía og hugmyndir

Við kynnumst fyrirtækinu, markhópnum og markmiðunum og mótum stefnu fyrir TikTok. Svo komum við með hugmyndir sem passa við tóninn á miðlinum.

02

Handrit

Hver hugmynd fær handrit með krók, framvindu og skýrum endi. Þú færð handritið til yfirlestrar áður en nokkuð er tekið upp.

03

Tökur með leikurum

Við mætum með allan búnað. Starfsfólk þitt getur leikið í myndböndunum, eða við fáum leikara inn ef það hentar betur.

04

Klipping og birting

Við klippum, litvinnum og textum myndbandið fyrir snjallsíma. Þegar þú hefur samþykkt það birtum við það.

Fyrir hverja?

Fyrir fyrirtæki af öllum stærðum sem vilja ná til fólks á TikTok en hafa hvorki tíma né mannskap til að framleiða efnið sjálf. Hvort sem markmiðið er að kynna vöru, auka sýnileika vörumerkisins eða ná til yngri markhóps, þá sérsníðum við myndbandagerðina að þínum rekstri.

Algengar spurningar

Nýtast TikTok myndböndin á öðrum miðlum?

Já. Við aðsníðum myndböndin að hverjum miðli, svo sama efni getur líka birst á Instagram Reels, Facebook og YouTube Shorts.

Þurfum við að vera fyrir framan myndavélina?

Nei, en það virkar oft best. Starfsmaður, eigandi eða einhver úr teyminu getur leikið í myndböndunum. Annars fáum við leikara inn.

Hver kemur með hugmyndirnar?

Við. Þú færð hugmyndir og handrit til yfirlestrar áður en nokkuð er tekið upp. Ef þið eigið hugmyndir sjálf tökum við þær inn með glöðu geði.

Hversu mörg myndbönd fáum við?

Það fer eftir þörfum hvers og eins, en flestir viðskiptavinir okkar fá 1–3 myndbönd á mánuði.

Viltu ná athygli á TikTok?

Bókaðu kynningarfund. Við förum yfir markmiðin þín og hvernig TikTok myndbönd geta nýst fyrirtækinu.

Víbrur
Víbrur

Við framleiðum stuttmyndbönd fyrir samfélagsmiðla sem auka sýnileika og skila raunverulegum árangri.

© 2026 Víbrur ehf.

Myndbönd sem stöðva skrollið