AUGLÝSINGAR · TIKTOK · REELS · SHORTS
Auglýsingamyndbönd fyrir samfélagsmiðla
Myndbönd sem stöðva skrollið
Hvað við gerum
Við framleiðum stutt auglýsingamyndbönd fyrir TikTok, Instagram Reels, Facebook og YouTube Shorts, hönnuð til að selja vöru eða þjónustu. Góð auglýsing á samfélagsmiðlum lítur ekki út eins og hefðbundin auglýsing: hún grípur athyglina á fyrstu sekúndunni og kemur skilaboðunum hratt til skila.
Við sjáum um hugmynd, handrit, tökur með leikurum og klippingu. Myndböndin eru klippt í lóðréttu formi fyrir snjallsíma og má nota bæði sem kostaðar auglýsingar og sem hefðbundið efni á miðlunum þínum.
Við sérhæfum okkur í myndbandsgerð fyrir samfélagsmiðla. Hugmyndavinna, handrit, tökur, klipping og birting, allt á einum stað.
Afhent myndbönd
Ánægðir viðskiptavinir
Valin verk
Við höfum unnið með
Ferlið okkar
Frá hugmynd að tilbúinni auglýsingu, skref fyrir skref.
01
Strategía og hugmyndir
Við byrjum á að skilja vöruna, markhópinn og hvað fær hann til að staldra við. Út frá því komum við með hugmyndir að auglýsingum.
02
Handrit
Handritið byggir á sterkum krók, skýru tilboði eða skilaboðum og hvatningu til aðgerða. Þú færð það til yfirlestrar fyrir tökur.
03
Tökur með leikurum
Við tökum upp með allan búnað og leikurum þegar það á við, eða með þínu fólki í aðalhlutverki.
04
Klipping og afhending
Við klippum, litvinnum og textum auglýsinguna og aðsníðum hana að hverjum miðli. Eftir samþykki er hún tilbúin til birtingar.
Fyrir hverja?
Fyrir fyrirtæki sem vilja kynna tiltekna vöru, þjónustu eða tilboð og þurfa efni sem virkar í kostaðri birtingu á samfélagsmiðlum. Hvort sem þú ert að kynna eitthvað nýtt eða vilt fríska upp á auglýsingarnar þínar, þá byrjum við á að skilja markhópinn.
Algengar spurningar
Á hvaða miðlum virka auglýsingamyndböndin?
Við aðsníðum myndböndin að hverjum miðli, hvort sem það er TikTok, Instagram, Facebook Reels eða YouTube Shorts.
Þurfum við að leika í auglýsingunni?
Nei. Starfsfólk getur leikið ef það vill, en annars fáum við leikara inn.
Hver skrifar handritið?
Við. Þú færð hugmyndir og handrit til yfirlestrar áður en nokkuð er tekið upp.
Hvað kostar auglýsingamyndband?
Bókaðu fund og við gerum þér tilboð út frá þínum þörfum.
Viltu auglýsingu sem selur?
Bókaðu kynningarfund og fáðu tilboð í auglýsingamyndband fyrir þína vöru eða þjónustu.
Sími
Netfang
Við framleiðum stuttmyndbönd fyrir samfélagsmiðla sem auka sýnileika og skila raunverulegum árangri.
Hafa samband
© 2026 Víbrur ehf.
Myndbönd sem stöðva skrollið












