INSTAGRAM · FACEBOOK · REELS

Instagram Reels fyrir fyrirtæki

Hvað við gerum

Reels eru ein besta leiðin til að auka sýnileika fyrirtækisins á Instagram og Facebook. Við framleiðum stutt, lóðrétt myndbönd sem eru gerð fyrir miðilinn: hröð byrjun, skýr skilaboð og framsetning sem passar við vörumerkið þitt.

Við sjáum um hugmyndir, handrit, tökur, klippingu og birtingu, svo þú þarft ekki að hugsa um efnisgerð fyrir samfélagsmiðla. Algengast er að viðskiptavinir fái 1–3 myndbönd á mánuði, sem gefur jafnt og stöðugt flæði af efni á báða miðla.

Við sérhæfum okkur í myndbandsgerð fyrir samfélagsmiðla. Hugmyndavinna, handrit, tökur, klipping og birting, allt á einum stað.

áhorf á myndböndin okkar
áhorf á myndböndin okkar
áhorf á myndböndin okkar

Afhent myndbönd

Ánægðir viðskiptavinir

Valin verk

Hafþór Júlíus

Áhrifavaldur

1M like

ZO-ON

Útivistarfatnaður

1.595 like

Halla Tómasdóttir

Forsetaframboð 2024

6.276 like

HS Veitur

Veitur og innviðir

1.897 like

Lyfja

Verslun og heilsa

1.329 like

Eyþór Wöhler

Persónulegt vörumerki

1.308 like

Við höfum unnið með

  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan
  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan
  • Lyfja
  • Halla Tómasdóttir
  • ZO-ON Iceland
  • KSÍ
  • SJÁ
  • Icewear
  • BM Vallá
  • Slippfélagið
  • Terra
  • Pósthús Food Hall & Bar
  • Sjón
  • Loður
  • Nespresso
  • Lögreglan

Ferlið okkar

Frá fyrstu hugmynd að birtingu á Instagram og Facebook.

01

Strategía og hugmyndir

Við förum yfir markhópinn, markmiðin og hvað hefur virkað á þínum miðlum hingað til. Út frá því mótum við stefnu og komum með hugmyndir.

02

Handrit

Hvert Reel fær handrit sem heldur athyglinni frá fyrstu sekúndu. Þú færð það til yfirlestrar áður en tökur hefjast.

03

Tökur með leikurum

Við tökum upp á staðnum með allan búnað. Starfsfólk getur verið í mynd, eða við fáum leikara inn.

04

Klipping og birting

Við klippum, litvinnum og textum myndböndin og aðsníðum þau að Instagram og Facebook. Eftir samþykki birtum við þau.

Fyrir hverja?

Fyrir fyrirtæki sem eru þegar á Instagram og Facebook en vilja meira út úr miðlunum, og fyrir þau sem vilja byrja af krafti. Reels henta vel til að sýna vöru í notkun, kynna starfsfólkið og segja frá því sem gerist á bak við tjöldin.

Algengar spurningar

Birtast Reels bæði á Instagram og Facebook?

Já. Við aðsníðum myndböndin að hverjum miðli og sama efni getur birst bæði á Instagram og Facebook.

Hversu mörg myndbönd fáum við?

Það fer eftir þörfum hvers og eins, en flestir viðskiptavinir okkar fá 1–3 myndbönd á mánuði.

Þurfum við að vera fyrir framan myndavélina?

Nei, en það virkar oft best. Starfsmaður, eigandi eða einhver úr teyminu getur leikið í myndböndunum. Annars fáum við leikara inn.

Hvað kostar þjónustan?

Bókaðu fund og við smíðum pakka út frá þínum þörfum.

Viltu auka sýnileikann á Instagram?

Bókaðu kynningarfund og við förum yfir hvernig Instagram Reels geta nýst fyrirtækinu þínu.

Víbrur
Víbrur

Við framleiðum stuttmyndbönd fyrir samfélagsmiðla sem auka sýnileika og skila raunverulegum árangri.

© 2026 Víbrur ehf.

Myndbönd sem stöðva skrollið