Myndbandagerð fyrir samfélagsmiðla: TikTok, Reels og Shorts
Víbrur er framleiðslufyrirtæki í Kópavogi sem gerir stutt myndbönd fyrir fyrirtæki. Við sjáum um allt frá stefnu og hugmyndum að tökum, klippingu og birtingu – svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.
Allt ferlið á einum stað
Við sérhæfum okkur í stuttum myndböndum fyrir samfélagsmiðla sem auka sýnileika og skila raunverulegum árangri. Ein stofa sér um allt ferlið.
Stefna
Við förum yfir markmið, markhóp og miðla og leggjum línurnar áður en nokkuð er tekið upp.
Hugmyndir og handrit
Við komum með hugmyndir og handrit sem þú lest yfir og samþykkir.
Tökur
Við sjáum um tökurnar frá a til ö.
Klipping og litvinnsla
Myndböndin eru klippt, litvinnslan kláruð og þau aðlöguð að hverjum miðli.
Birting
Við aðstoðum við birtingu á TikTok, Instagram Reels og YouTube Shorts.
Myndbönd sem fólk horfir á
Myndböndin okkar hafa fengið yfir 26 milljónir áhorfa á Íslandi. Við höfum unnið með einstaklingum og fyrirtækjum á borð við:
Svona vinnum við
Spjall
Við hittumst, förum yfir markmiðin og finnum hvað hentar þínu fyrirtæki.
Hugmyndir
Þú færð hugmyndir og handrit til yfirlestrar.
Tökur og vinnsla
Við tökum upp, klippum og litvinnum.
Birting
Myndböndin fara í loftið á réttu miðlunum.
Algengar spurningar
Hvað gerir auglýsingastofa fyrir samfélagsmiðla eins og Víbrur?
Við sjáum um allt ferlið við stutt myndbönd fyrir samfélagsmiðla: stefnu, hugmyndir, handrit, tökur, klippingu, litvinnslu og birtingu. Þú færð tilbúin myndbönd fyrir TikTok, Instagram Reels og YouTube Shorts.
Eru leikarar innifaldir?
Nei. Ef verkefnið kallar á leikara bætist kostnaður við leikara við. Oft virkar vel að starfsmaður eða eigandi komi fram í myndböndunum.
Þurfum við að vera fyrir framan myndavélina?
Nei, en það virkar oft best. Starfsmaður, eigandi eða einhver úr teyminu getur komið fram í myndböndunum.
Fyrir hvaða miðla eru myndböndin?
Við aðlögum myndböndin að hverjum miðli, hvort sem það er TikTok, Instagram Reels, Facebook Reels eða YouTube Shorts.
Hver kemur með hugmyndirnar?
Við. Þú færð hugmyndir og handrit til yfirlestrar áður en tökur hefjast. Ef þið eigið hugmyndir sjálf tökum við þær inn með glöðu geði.
Hvar eruð þið staðsett?
Víbrur er framleiðslufyrirtæki í Kópavogi. Við erum við virka daga frá kl. 8 til 16 og vinnum með fyrirtækjum um allt land.
Má bjóða þér um borð í framtíðina?
Segðu okkur frá fyrirtækinu þínu og við komum með tillögu að myndböndum sem henta. Opið virka daga kl. 8–16.